Soundtracks: A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #

List of artists: A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #


Apaspil


Nydonsk Lyrics

 

Apaspil Lyrics

Apaspil by Nydonsk


Þetta eru mest seldu buxurnar í búðinni í dag,
Viltu máta? Get ég aðstoðað?
Vá þær fara þér vel og eru fitt á þér,
þú ert eins og módel klippt úr auglýsingu frá In Wear.
Að þessum orðum töluðum vindur unga stúlkan sér
á bak við borð og vill fá borgaðar buxurnar.
Með bros á vör greiðslan innt af hendi er,
Hvað er ekki gert til þess að vera eins og hinir?
Til að vera eins og allir?
Viðlag:
Hvernig get ég látið þig hætta að apa eftir öðrum
þegar ég minnist þess og veit að þú ert komin af öpum.
Eins og ég.
Í dag færðu að heyra flottasta poppið í útlöndum
Og ef þú gefur í það skít hlýtur þú að vera skrýtin.
Ef þú vilt komast á stall með nokkrum útvöldum,
Kemur þú til okkar og við dönsum eins og gert er í Lundúnum.
Viðlag...
Á morgun verð ég fugl og flýg um loftin blá.
Fylgist með kamelljónunum aðlagast aðstæðum
Svo að á endanum verður hvergi mann að sjá
Mikið verður lítið gaman að lifa þá.
Viðlag...



A-Z Lyrics Universe

Lyrics / song texts are property and copyright of their owners and provided for educational purposes.